Renniverkstæði - Lagerstarf
Ossur
Workday Reykjavík, Iceland Posted Oct 26, 2026 Full Time
Other
About this role
Langar þig að vera hluti af öflugu og spennandi teymi innan stoðtækjaframleiðslu Össurar?
Össur leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila í starf á lager fyrir renniverkstæði.
Viðkomandi mun starfa við móttöku, meðhöndlun og afhendingu á hráefni á lager og því er nauðsynlegt að viðkomandi sé sjálfstæður í vinnubrögðum, með góða samskiptahæfni.
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi sem er til í að vera góður liðsfélagi og ganga í öll verkefni sem þörf er á hverju sinni.
Hjá Össur starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.
Umsóknarfrestur til og með 9. nóvember 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka á hráefniSamantekt og meðhöndlun á hráefniÖnnur tilfallandi verkefni tengd lager
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af lagerstörfum er æskilegReynsla af birgðarhaldi er kosturLyftarapróf er kosturAlmenn tölvukunnátta, þekking á BC/Navision er kosturÞjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfniSkipulagshæfni þarf að vera góðFrumkvæði og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymiGóð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði