Skip to content
Browse live jobs
Deloitte

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte

Deloitte

SmartRecruiters
Kópavogur, Kópavogsbær, Iceland Posted Oct 8, 2026 Full Time
On-siteEngineeringJunior

About this role

Company Description Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 320 á Íslandi. Job Description Áhættu- og gæðadeild Deloitte (QRS) leitar að jákvæðum, drífandi, sjálfstæðum og metnaðarfullum liðsfélaga.  Starfið felur í sér að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem eru unnin innan deildarinnar. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á gæðamálum, bestun ferla og aukinni skilvirkni. Ekki er gerð krafa um reynslu af gæðamálum, við kennum á starfið.  Starfið hentar vel fólki sem er nýkomið úr námi.     Helstu verkefni meðal annarra:   Þátttaka í innleiðingu á verkferlum (verklagsreglum og stöðlum )  Skráning í gæðakerfi og áhættumat  Eftirlit með reglufylgni og áhættumati    Samþykki viðskiptavina og hlýtni við lög  Mikil samskipti við önnur svið innan Deloitte  Rýni ársreikninga og annarra gagna  Qualifications Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði og/eða önnur menntun  Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu og að stuðla að góðum starfsanda    Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð mikilvæg   Áhugi á að læra nýja hluti í tengslum við gæða- og reglufylgni   Gagnrýnin hugsun og greiningarhæfni mikilvæg   Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli skilyrði   Additional Information Um teymið    Áhættu- og gæðadeild starfar þvert á önnur svið Deloitte og er þeim innan handar með ýmis konar mál og fylgni við lög og reglur. Við vinnum saman sem ein heild og störfum mikið með áhættu- og gæðadeildum annarra Norðurlanda.    Starfsþróun    Það er mikilvægt að muna að á fyrsta degi kann enginn allt og við trúum því að það sé ávallt rými til að læra og bæta við sig þekkingu. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem unnin eru í teyminu og færð góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.    Að auki bjóðum við upp á:   Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat  Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf  Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi  Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum  Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, golfklúbbur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt  Við hlökkum til að fá umsóknina þína. Nánari upplýsingar um starfið veita Pétur Hansson (pehansson@deloitte.is) og Helen Breiðfjörð (hbreidfjord@deloitte.is).  Tekið er á móti umsóknum (ferilskrá og kynningarbréfi) til og með 18. október 2026   Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

More current roles in the same field and location.